Fréttir

Hannað fyrir FIFA

Fífa barnafataverslun er flutt í bæinn okkar og fengum við það skemmtilega hlutverk að merkja hana hátt og lágt. Við poppuðum upp litina og eru merkingar líflegar enda kemst enginn hjá því að sjá verslunina sem kemur í miðbæinn. Fífa er staðsett í Kaupvangsstræti 1, neðstu hæð við hliðina á Subway.

 

Hannað fyrir Svörtu kómedíuna

Þá er Leikfélag Akureyrar að fara af stað með fyrsta verk í eigin uppfærslu, Svörtu kómedíuna, á þessu leikári. Stíll hefur séð um hönnun á markaðsefni fyrir sýninguna og var að ljúka við að senda leikskrána í prent. Nú er bara að skella sér í leikhúsið og grenja sig máttlausan af hlátri.

Leikársbæklingur Leikfélags Akureyrar

 

Þá er bæklingur um nýtt leikár hjá LA að detta inn um bréfalúgur um allt land. Stíll sá um hönnun og umbrot og bæklingurinn var prentaður hjá Ásprent.

Sala á áskriftarkortum er nú hafin og einnig má nálgast frekari upplýsingar á leikfelag.is.

 

Sumarlokun í viku eftir verslunarmannahelgi 1. til 5. ágúst

 

Stofan er lokuð vikuna 1. til 5. ágúst vegna sumarleyfa. Verkum sem hefur verið lofað á þessu tímabili verður framfylgt. En ekki er tekið við verkbeiðnum á tímabilinu.

Ef erindið er áríðandi vinsamlega hafið samband í síma 616 1019

Bestu sumarkveðjur

Starfsfólk Stíls

 

Kynningarefni Háskólans á Akureyri

Við hjá Stíl erum í árlegu hönnunarferli fyrir háskólann á Akureyri á nýju markaðs- og kynningarefni. Stíll hefur séð um alla hönnun á markaðsefni HA síðustu ár og hefur samstarfið verið krefjandi, spennandi og mjög skemmtilegt í senn. Til viðbótar þetta árið erum við einnig að hanna litakóða fyrir 3 svið HA, Heilbrigðisvísindasvið, Hug- og félagsvísindasvið og Viðskipta- og raunvísindasvið. Litirnir verða notaðir í samlífi við aðalit HA og munu verða spennandi viðbót við sjónrænt auðkenni stofnunarinnar.