Hönnun
Hugmyndavinna, hönnun og heildarlausnir
Við bjóðum þér heildarlausnir í kynningarmálum fyrir þitt fyrirtæki og leggjum metnað okkar í að vinna með viðskiptavinum okkar að snjöllum lausnum sem skila árangri. Hvort heldur sem er hönnun á útliti, firma- og vörumerki, auglýsingar, umbúðir, merkingar, markpóstur, vefsíður, sýningarbásar eða aðrir þættir, sjáum við til þess að það sem þú vilt segja komist til markaðarins á frumlegan og grípandi hátt.
Textagerð
Það skiptir ekki bara máli hvað þú segir, heldur hvernig þú segir það. Textagerðarmenn okkar smíða þann texta sem hittir í mark, hvort sem um ræðir slagorð eða lengri texta. Auk þýðinga á erlend tungumál.
Prentumsjón
Við gerum samninga við prentsmiðjur og leitum í öllum tilfellum bestu gæða og hagkvæmustu verða. Við fylgjum verkinu eftir og sjáum til þess að verkinu sé skilað í þeim gæðum og á þeim tíma sem um var samið. Að auki er Stíll í eigu Ásprents Stíls sem einnig á prentsmiðjuna Ásprent. Það tryggir að viðskiptavinir okkar fá ætið bestu verð á prentun hjá Ásprenti, henti það verkinu. Sem aukna þjónustu við viðskiptavini okkar höfum við einnig komið því svo fyrir að sami aðili fylgir verkinu eftir á auglýsingastofunni og í framleiðslu hjá prentsmiðjunni – það tryggir aukin gæði.
